Bankastjórastöður auglýstar

Bankastjórastöðurnar verða auglýstar.
Bankastjórastöðurnar verða auglýstar. mbl.is

Bankastjórastöður ríkisbankanna þriggja verða auglýstar lausar til umsóknar á næstunni. Fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra ræddu við formenn bankaráðanna í dag og er þetta niðurstaðan af fundunum.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, hefði ekki heyrt að auglýsa ætti stöðu hans, en það komi honum ekki á óvart. Hann mun sækja um stöðuna. Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Landsbankans, sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem fram kemur að hún muni ekki sækja um stöðuna.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Glitnis, sagðist í samtali við mbl.is ekki hafa heyrt af því að auglýsa ætti stöðuna. Birna vildi ekki tjá sig spurð um hvort hún hygðist sækja um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert