Sjálfstæðiskonur fordæma árásir á Gasa

Ísraelskir skriðdrekar á Gasasvæðinu.
Ísraelskir skriðdrekar á Gasasvæðinu. Reuters

Landssamband sjálfstæðiskvenna hefur sent frá sér ályktun þar sem árásir Ísraelsmanna á saklausa borgara á Gasasvæðinu eru fordæmdar. 

Ályktunin var samþykkt á stjórnarfundi sambandsins í gær. Er vísað til þess að fjöldi óbreyttra borgara, konur og börn hafi stórskaðast og látið lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert