Hafnfirðingur nokkur hringdi í lögregluna á dögunum, sagði að ókunnur köttur væri kominn inn í íbúð sína og vildi að lögreglan kæmi og fjarlægði dýrið.
Manninum var sagt, að ekki væri hægt að bregðast við tafarlaust enda fylgdi sögunni að kötturinn væri svosem ekkert ófrýnilegur. Maðurinn lét sér það vel lynda en tók síðan til sinna ráða, handsamaði köttinn og fór með hann á lögreglustöðina.
Fram kemur á vef lögreglunnar, að farið hafi verið yfir málið en áhyggjur mannsins voru skiljanlegar. Hinn óboðni gestur, sem var fressköttur, hafði nokkrum sinnum áður farið inn í sömu íbúð en þar býr einnig læða. Varpaði þetta ljósi á atburðarásina og skýrði heimsóknir freskattarins.
Hinum óboðna ketti var þar næst sleppt úr haldi og hefur hann síðan haldið sig réttu megin við lögin, að sögn lögreglunnar.