Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Jacob Vestergaard starfsbróðir hans í Færeyjum hittust í Reykjavík í dag til að ganga frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga fyrir árið 2009.
M.a. fá Færeyingar að veiða 30 þúsund tonn af loðnu í íslenskri lögsögu svo framarlega sem útgefinn kvóti verði að minnsta kosti 500 þúsund lestir. Verði kvótinn minni fá Færeyingar 5% í sinn hlut. Er þetta samhljóða samningi sem gerður var í fyrra.
Færeyingar hafa heimild til að frysta loðnu og vinna um borð og landa loðnu til manneldis erlendis. Mega þeir þannig frysta 3/4 kvótans en þó þannig að aldrei fari meira en 1/3 kvótans til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar sé útgefinn kvóti 500 þúsund lestir eða minna. Sé útgefinn kvóti meira en 500 þúsund lestir er Færeyingum heimilt að frysta 2/3 kvótans fyrir 15. febrúar.
Samkomulag er um að þjóðirnar fái áfram að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld innan lögsögu hvorrar annarrar. Hámarksfjöldi íslenskra skipa í færeysku lögsögunni hverju sinni við kolmunnaveiðar verður áfram 12.
Botnfiskveiðiheimildir Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á árinu 2009. Færeysk skip hafa því heimild til að veiða 5600 lestir af botnfiski á árinu. Heildarafli þorsks verður þó aldrei meiri en 1200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 45 lestir.
Íslensk skip hafa heimild til að veiða 2000 lestir af Hjaltlandssíld við Færeyjar og 1300 lestir af makríl.
Þá var ákveðið að fulltrúar landanna hittist á vormánuðum til að ræða sérstaklega eftirlit með veiðum í lögsögum Íslands og Færeyja. Markmið með slíkum fundi er að fara yfir framkvæmd eftirlitsins, hvernig það megi bæta og tryggja enn betur samvinnu þeirra sem því sinna.