Út af efnahagsástandinu hefur Iceland Express ákveðið að efna til rýmingarsölu á 5000 flugsætum í janúar og febrúar. Útsalan stendur yfir í 12 klukkustundir, frá kl. 12 á hádegi til miðnættis.
Um er að ræða 5000 flugsæti og ferðatímabilið er frá 16. janúar til 28. febrúar. Fargjaldið er 1.270 krónur hvora leið (6.995 kr með sköttum og gjöldum). Flugleiðirnar sem í boði eru, eru á milli Keflavíkur og Lundúna, Kaupmannahafnar, Varsjár og Berlínar, að því er segir í tilkynningu frá Iceland Express.