Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 9. janúar til og með 15. janúar 2009 var 21. Þar af voru 14 samningar um eignir í fjölbýli, 3 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 534 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,4 milljónir króna.
Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 184 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Akureyri. Hann var samningur um annarskonar eign en íbúðarhúsnæði. Upphæð samningsins var 1 milljón króna.
Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eign í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 62 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,6 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá ríkisins.