Kjararáð hefur hafnað ósk Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að laun hans verði lækkuð á sama hátt og laun forsætisráðherra og forseta Alþingis, handhafa forsetavalds. Segir Kjararáð að slík launalækkun sé óheimil samkvæmt stjórnarskrá.
Ráðið tók ekki afstöðu til þess hvort forsetinn gæti sjálfur afsalað sér hluta launa sinna, tímabundið eða varanlega, með tilkynningu til fjármálaráðherra.