Árangurslítill fundur hjá ríkissáttasemjara

Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson mbl.is/SteinarH

Hægt miðar í viðræðum um kjarasamning starfsmanna Klafa en þeir sjá um upp- og útskipanir á Grundartangasvæðinu. Kjarasamningur Klafa rann út 1. desember sl. og hafa samningsaðilar reynt að ná niðurstöðu um alllanga hríð. Krafan er að starfsmenn Klafa, sem eitt sinn voru starfsmenn Elkem á Íslandi, fái sömu launahækkanir og samið var um fyrir starfsmenn Elkem í byrjun desember eða 17 til 18%.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að náðst hafi samkomulag um nokkur atriði í nýjum kjarasamningi starfsmanna Klafa. Samkomulag sé um nýtt bónuskerfi en viðræður um stóra málið, almennar launahækkanir, séu algjörlega strand þessa stundina. Ríkissáttasemjari ákvað í morgun að slíta fundi en boðaði samningsaðila til fundar á ný á morgun til að reyna að ná niðurstöðu.

Eins og staðan er núna lítur það þó ekki vel út, að sögn formanns Verkalýðsfélags Akraness.

„Krafa starfsmanna Klafa er sú að fá sömu launahækkun og um samdist hjá starfsmönnum Elkem Ísland sem starfa á sama svæði. Rétt er að minna enn og aftur á að starfsmenn Klafa voru eitt sinn starfsmenn Elkem Ísland, en fyrir örfáum árum var ákveðið að stofna sér fyrirtæki í kringum þá sem störfuðu í flutningadeild fyrirtækisins. Það er því alveg ljóst að félagið mun ekki geta sætt sig við það að stofnuð séu dótturfyrirtæki í kringum Elkem Ísland sem verða þess valdandi að starfsmenn þeirra sitja eftir í launum miðað við starfsmenn móðurfyrirtækisins,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA.

Heimasíða VLFA
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert