Fimm starfsmönnum Eimskips var um helgina afhent Gullmerki félagsins fyrir 25 ára starfsferil. Sú hefð hefur skapast að allir starfsmenn sem starfað hafa hjá Eimskip í 25 ár séu heiðraðir með gullmerkinu ýmist á árshátíð eða afmælisdegi félagsins, en Eimskip varð einmitt 95 ára um helgina og var haldið upp á afmælið í Sjóminjasafninu.
Gullmerkið í þetta skiptið hlutu þau Sigurjón Nilsen háseti á Goðafossi, Magnús Bergsson rafvirki á rafmagnsverkstæði Eimskips, Gunnar Örn Árnason verkstjóri í gámafærsluþjónustu, Elfa Brynja Sigurðardóttir ráðgjafi í viðskiptaþjónustu, Áslaug Guðjónsdóttir deildarstjóri í fjárstýringu og Steinþór Hreinsson bátsmaður á Dettifossi.
Gullmerki Eimskips var fyrst afhent þann 18. janúar 1964 á árshátið félagsins. Það var hinsvegar ekki fyrr en 17. janúar 1988 sem byrjað var að heiðra verkamenn og undirmenn á skipunum fyrir 25 ára starf og fengu 60 manns gullmerki félagsins það árið. Síðan þá hafa allir starfsmenn með 25 ára starfsaldur hlotið gullmerkið.