Endurskoðar fjárnámsaðgerðir

Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður í Árnessýslu.
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður í Árnessýslu.

Sýslumaðurinn á Selfossi hefur tilkynnt dómsmálaráðuneytinu, að hér eftir sem hingað til muni verða beitt vægustu aðferðum við innheimtu gjalda. Hefur ráðuneytið eftir sýslumanninum, að yfirlýsing sem hann gaf í gær um fyrirhugaðar innheimtuaðgerðir hafi ekk verið viðeigandi.

Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, sagði við fjölmiðla í gær að hann ætlaði að gefa fyrirmæli til lögreglu um að handtaka 370 einstaklinga í Árnessýslu, þar sem þeir hefðu ekki skilað sér í fjárnám hjá embætti hans.

Dómsmálaráðuneytið segir í tilkynningu, sem barst nú um hádegið, að Ólafur Helgi hafi tekið ákvörðun sína án samráðs við dómsmálaráðuneyti. Í tilefni hennar vilji dómsmálaráðherra taka fram, að hann telji ekki skynsamlegt af sýslumanni að kynna ákvörðun sína með þeim hætti, sem hann hafi gert í fjölmiðlum. Þá sé það ekki í samræmi við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar, að nú sé gripið til óvenjulegra og harkalegra innheimtuaðgerða af hálfu sýslumanns. Í því efni beri að gæta reglna stjórnsýsluréttarins um jafnræði og meðalhóf í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.

„Hefur dómsmálaráðuneytið beint þeim tilmælum til sýslumannsins á Selfossi, að hann hafi ofangreind meginsjónarmið í huga. Sýslumaðurinn hefur tilkynnt ráðuneytinu, að hér eftir sem hingað til muni verða beitt vægustu aðferðum við innheimtu gjalda auk þess sem sýslumaður segir, að yfirlýsing sín hafi ekki verið viðeigandi í hinu erfiða umróti í þjóðfélaginu um þessar mundir.

Sýslumaður hefur jafnframt skýrt ráðuneytinu frá því, að hann muni taka til endurskoðunar vinnubrögð í þeim tilvikum að ítrekuðum kvaðningum hafi ekki verið sinnt og hvetji alla hlutaðeigandi til þess að hafa samband vegna sinna mála þannig að þeim verði lokið með farsælum hætti. En slíkt sé allra hagur," segir í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins.

Ólafur Helgi sagði við Morgunblaðið í gær, að skuldirnar að baki fjárnámsbeiðnunum væru af öllum toga: viðskiptaskuldir og skuldir vegna kreditkorta og bankalána. Þá væru upphæðirnar líka mjög misháar. Í sumum tilfellum hafi skuldin upphaflega verið nokkur hundruð krónur en um verulega háar upphæðir sé að ræða í öðrum tilfellum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka