Ekið var á hreindýr á Þrengslaveginum við Heiðarenda á Jökulsárdal um tíuleytið í gærkvöldi. Aflífa þurfti hreindýrið og er fólksbíllinn sem á dýrið ók svo gott sem ónýtur að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum. Mikil ísing er á veginum og hvetur lögregla fólk til að fara varlega.