Íslenskur togari færður til hafnar

Norska strandgæslan færði í gærmorgun íslenskan togara til hafnar í Hammerfest vegna gruns um að veiðidagbók skipsins hefði ekki verið rétt færð. Fram kemur í norska blaðinu Nordlys, að togarinn sé nú farinn frá Hammerfest eftir að skipstjórinn greiddi sekt.

Nordlys segir, að um borð í skipinu hafi verið 50-60 tonn af afla, aðallega þorskur. Skipið hélt úr höfn um klukkan 17:30 í gær eftir að skipstjórinn hafði greitt 15 þúsund norskar krónur í sekt, jafnvirði um 280 þúsund króna og útgerðin 150 þúsund krónur, jafnvirði um 2,8 milljóna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert