Sex umsóknir bárust um embætti sóknarprests í Laufásprestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi, fjórir karlar og tvær konur. Prestur hefur ekki verið með aðsetur í Laufási síðan séra Pétur Þórarinsson lést árið 2007.
Umsækjendur eru:
Séra Bolli Pétur Bollason
Séra Hildur Inga Rúnarsdóttir
Cand. theol. Sólveig Jónsdóttir
Cand. theol. Stefán Karlsson
Cand. theol. Sveinbjörn Dagnýjarson
Cand. theol. Ævar Kjartansson
Embættið veitist frá 1. mars 2009.
Valnefnd velur sóknarprest. Hún er skipuð prófasti Þingeyjarprófastsdæmis, sem jafnframt er formaður nefndarinnar og níu fulltrúum prestakalls. Biskup Íslands skipar þann í embættið til fimm ára sem valnefnd hefur náð samstöðu um.