Hátt í 8.000 manns hafa skráð nafn sitt á vefsíðuna www.kjosa.is og stutt þá kröfu að efnt verði til Alþingiskosninga eins fljótt og auðið er, að því er forsvarsmenn síðunnar segja.
„Kjósendur á Íslandi telja ekki fært að hefja uppbyggingarstarf eftir bankahrunið nema með endurskoðuðu umboði stjórnvalda.
Í lýðræðisþjóðfélagi er það aðeins hægt með kosningum til Alþingis og
myndun ríkisstjórnar byggða á þeim meirihluta sem þá nær saman eða
þjóðstjórn fái enginn flokkur skýrt umboð kjósenda,“ segir á vefsíðunni.