Fámenn mótmæli eru nú á Austurvelli við Alþingishúsið. Á að giska 40 manns mynda þar mótmælastöðu með friðsömum hætti og berja pottlok og aðra málmhluti til að framleiða hávaða. Lögreglan er á staðnum en hefur ekki afskipti af fólkinu enda mótmælin á rólegum nótum.
Eftir tíðindi dagsins úr Valhöll virðist hafa sljákkað á hitanum í mótmælendum í bili, en þeim er þó ekki öllum lokið ef marka má orð Harðar Torfasonar og annarra mótmælenda.