Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fyrrverandi stjórn Glitnis banka til að greiða Vilhjálmi Bjarnasyni 1,9 milljónir króna í bætur vegna þess að Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri bankans, seldi bankanum hlutabréf á yfirverði, sem öðrum hluthöfum bankans bauðst ekki.
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu, að stjórn Glitnis hafi hvorki gætt hagsmuna bankans né hluthafa þegar hún gekk frá kaupum á hlutum Bjarna Ármannssonar á yfirverði. Stjórnin hafi einnig mismunað hluthöfum bankans. Henni hafi borið að sýna ráðdeild við meðferð eigna ankans en það hafi hún ekki gert í þessu tilfelli. Hafi stjórnin bakað sér skaðabótaábyrgð með þessari samningsgerð og beri að greiða Vilhjálmi bætur.
Vilhjálmur byggði bótakröfu sína á því, að honum hafi ekki verið gefinn kostur á því að selja bankanum hlutabréf sín á genginu 29, eins og Bjarni fékk, og kaupa þau aftur á genginu 26,66 sem var markaðsgengi bréfanna þennan dag.
Héraðsdómur tekur undir þessa kröfu og segir að þar sem stjórn Glitnis hafi aflað Bjarna Ármannssyni ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa og félagsins, þá hafi hún mismunað hluthöfum bankans og beri ábyrgð á því.
Dómurinn í heild