Ökumaðurinn fundinn

mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er búin að finna manninn sem talinn er hafa ekið á ungan mann í miðborginni í nótt. Ökumaðurinn er nú í haldi lögreglu og verður yfirheyrður í dag, en hann ók á braut eftir slysið í nótt. 

Maðurinn sem ekið var á reyndist mjög alvarlega slasaður með höfuðáverka og gengst nú undir aðgerð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert