Um 300 manns eru á Ráðhústorgi á Akureyri þar sem Fólkið í landinu skipuleggur mótmæli eins og undanfarna laugardaga. Sextán dráttarvélar fóru á undan kröfugöngu frá Samkomuhúsinu og út á torg - og er vélunum nú lagt á Ráðhústorgi á meðan fundurinn fer fram.
Ræðumenn á fundinum voru Guðbergur Egill Eyjólfsson, bóndi og nemi við Háskólann á Akureyri og Embla Eir Oddsdóttir, sem titluð er íslensk kona.