Fólk, sem hefur mótmælt á Austurvelli í dag, færði sig um set og gekk að höfuðstöðvum Baugs Group við Túngötu og barði þar í bumbur og annað slagverk.
Samkvæmt upplýsingum mbl.is bárust fréttir af því að fundur stæði yfir í húsakynnum Baugs og því voru mótmælin flutt þangað.
Eftir um 10 mínútna mótmælastöðu utan við hús Baugs hélt hópurinn á ný niður á Austurvöll.