Varðskip Landhelgisgæslunnar stóð í dag línu- og handfærabátinn Ólaf HF 200 að meintum ólöglegum veiðum í skyndilokunarsvæði norður af Vatnsleysuströnd.
Þá hafði lögreglan á Þórshöfn í dag samband við stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar þar sem í fjörunni á Langanesi fannst torkennilegt
dufl. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar kannaði málið en og fékk sendar
myndir frá Þórshöfn. Var þá hægt að greina hlutinn en um var að ræða
svonefnda „mann fyrir borð" bauju.
Landhelgisgæslan hvetur almenning til hafa samband eða gera lögreglu
viðvart ef það verður vart við torkennilega hluti í sjó eða í fjörum
landsins. Mjög varhugavert er að eiga við slík fyrirbæri.