Lögregla á Vestfjörðum vill benda foreldrum og forráðamönnum barna á að nota þann öryggisbúnað sem þarf fyrir ung börn í bílum, en talsvert er um að þegar komið er með börn á leikskólana að börnin séu laus í bílum.
fjögur umferðaróhöpp voru í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði í liðinni viku. Flutningabíll valt sunnan við Hólmavík, ekki slys á fólki. Þá fór fólksbíll út af veginum á Kirkjubólshlíð og hafnaði niður í fjöru. Þrír voru í bílnum og sluppu þeir ómeiddir.
Tvö önnur minni háttar óhöpp urðu. Lögregla vill benda vegfarendum á að akstursskilyrði er mjög misjöfn og breytast hratt í umhleypingum þeim sem núna eru.