Ísland hefur undanfarna tvo áratugi búið við pólitískan stöðugleika. Síðasta stjórnarkreppa á Íslandi var árið 1987, en þá var landið án ríkisstjórnar í rúma tvo mánuði. Henni lauk með því að þriggja flokka stjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðuflokks var mynduð undir forystu Þorsteins Pálssonar, þáverandi formanns Sjálfstæðisflokksins. Síðan þá hafa allar ríkisstjórnir verið myndaðar á fáeinum dögum og allar hafa þær setið út kjörtímabilið nema sú sem sprakk í gær.
Stjórn Þorsteins varð skammlíf og lauk samstarfi hennar á sögulegan hátt: Í beinni útsendingu á Stöð 2 haustið 1988 eftir að hafa setið í rúmt ár. „Líkindi með núverandi stjórn og þeirri sem sat veturinn 1987-1988 eru þau að hún hrökklast frá völdum eftir að hafa setið stutt,“ segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. Hann segir þó aðstæður allt aðrar enda hafi hrun bankanna og fjármálakreppan sett mark sitt á starf stjórnarinnar sem féll í gær.
Guðni segir að stjórnarslitin 1988 megi setja í sögulegt samhengi. „Þriggja flokka stjórnir eiga sér ekki glæsta sögu á Íslandi. Það segir sig eiginlega sjálft að það verður erfiðara að samræma sjónarmið þriggja flokka en tveggja. Sjálfstæðisflokkurinn var auðvitað sá flokkur sem galt afhroð í kosningum 1987 og því var alls ekki sjálfsagt að hann yrði sá flokkur sem leiddi næstu ríkisstjórn, enda tók 74 daga að mynda stjórn,“ segir Guðni. Eftir að stjórnin var mynduð gekk Þorsteini Pálssyni illa að fá þá Steingrím Hermannsson og Jón Baldvin Hannibalsson til liðs við sig í mikilvægum málaflokkum. Því lengur sem þessir erfiðleikar stóðu því meira freistandi varð að fara aðrar leiðir. Sem varð síðan til þess að Jón Baldvin og Steingrímur yfirgáfu Þorstein og mynduðu vinstristjórn með Alþýðubandalaginu, auk Stefáns Valgeirssonar, á einni viku.
Guðni segir að það sem sé ólíkt núverandi stjórn og þáverandi sé hið góða samstarf Ingibjargar og Geirs. „Í þessari stjórn virðist hafa verið fullt traust milli formannanna og virðist hafa verið með ágætum alveg þangað til í dag [í gær].“
Stjórn Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags lenti í miklum erfiðleikum haustið 1989 og fékk í kjölfarið Borgaraflokkinn til liðs við sig. Hún sat síðan til ársins 1991 er ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók við völdum en hana mynduðu Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur.