Gagnrýnir dóm um flengingar

Margrét María Sigurðardóttir,  umboðsmaður barna, hefur ritað dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og félags- og tryggingamálaráðuneytinu, bréf þar sem gagnrýndur er dómur Hæstaréttar um flengingar og farið fram á að lögum verði breytt.

Í málinu var karlmaður m.a. ákærður fyrir  brot gegn hegningarlögum fyrir að hafa m.a. rassskellt tvö börn sambýliskonu sinnar, þegar börnin voru 6 ára og 4 ára. 

Í dómi Hæstiréttar er m.a. vísað til þess að barnaverndarlög leggi ekki  fortakslaust bann við því að foreldri eða annar maður með samþykki þess beiti barn líkamlegum aðgerðum til að bregðast við óþægð, heldur sé refsinæmi slíkrar háttsemi háð því að gerðir hans séu til þess fallnar að skaða barnið andlega eða líkamlega. Þá kemur fram í dómnum, að 217. grein almennra hegningarlaga eigi ekki við þegar foreldrar samþykkja ofbeldi gegn börnum sínum.

Umboðsmaður barna segir, að þótt barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna hafi ekki verið lögfestur hér á landi sé Ísland skuldbundið að þjóðarétti að virða ákvæði hans. Í 19. gr. sáttmálans sé börnum tryggð vernd gegn hvers konar ofbeldi, hvort sem það er í umsjá foreldra eða annarra.

Segist umboðsmaður barna telja nauðsynlegt að breyta ákvæði barnaverndarlaga og ákvæðum barnalaga þannig að það komi berum orðum fram í lögum að barn eigi rétt á vernd gegn hvers konar ofbeldi frá foreldrum sínum. 

Þá gagnrýnir umboðsmaður barna þá lagatúlkun, sem komi fram í dóminum, að 217. grein hegningarlaga eigi ekki við um flengingar barna, ef foreldrar samþykkja þær. 

„Hvers kyns ofbeldi gagnvart börnum er ólíðandi, hvort sem ofbeldið er andlegt eða líkamlegt. Það getur að mati umboðsmanns barna ekki staðist að börnum sé veitt minni vernd gegn ofbeldi en fullorðnum. Umboðsmaður barna hefur því farið fram á að lögum verði breytt og börnum tryggð sú vernd sem þau eiga rétt á samkvæmt lögum og alþjóðlegum mannréttindasamningum," segir í bréfinu.

Heimasíða umboðsmanns barna

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka