Alls eru 12.793 skráðir á atvinnuleysisskrá á landinu öllu, samkvæmt vef Vinnumálastofnunar. Þar af eru 8.062 karlar og 4.731 kona. Á höfuðborgarsvæðinu eru 8.066 skráðir atvinnulausir, 5.242 karlar og 2.824 konur. Í desember mældist atvinnuleysi að meðaltali 4,8% á höfuðborgarsvæðinu en þá voru 5.009 skráðir þar á atvinnuleysisskrá.