Það hefur snjóað talsvert á höfuðborgarsvæðinu í dag. Að sögn lögreglunnar hefur snjórinn ekki truflað umferð. „Þegar svona gerist þá fara allir í hæga gírinn,“ segir varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Frá því klukkan sjö í morgun hefur verið tilkynnt um tvo minniháttar árekstra.