Fornleifarannsóknir við landnámsbæinn í Höfnum munu hefjast í vor en menningarráð Reykjanesbæjar ákvað á fundi sínum nýverið að ganga til samninga við Bjarna F. Einarsson fornleifafræðing og forstöðumann Fornleifastofunnar um uppgröft og úrvinnslu gagna.
Byggðasafn Reykjanesbæjar og Fornleifastofan fengu styrk til verkefnisins frá Menningarsjóði Suðurnesja og hefur verið samið við Háskóla Íslands um að rannsóknin verði nýtt til verklegrar kennslu í fornleifafræði.
Í tengslum við verkefnið verða skipulagðar heimsóknir 11 ára grunnskólanema í Reykjanesbæ á svæðið sem geta fylgst með framkvæmdinni.
Landnámsskálinn fannst við Kirkjuvogskirkju árið 2003 þegar unnið var að fornleifaskráningu í bæjarlandinu en þeirri skráningu er nú lokið. Þegar prufuholur voru gerðar kom í ljós að skálinn gæti ekki verið yngri en frá aldamótunum 900 sem setur hann í flokk meðal elstu byggðarleifa á Íslandi. Jarðvegsmæling á öllu svæðinu sýndi svo fleiri rústir og þykir það sérstaklega áhugavert þar sem ekki hefur verið byggt ofan á rústirnar eins og venja hefur verið.
Talið er að íbúarnir hafi búið á staðnum í nokkra áratugi en síðan flutt í burt eða flutt bæjarstæðið til.