Óskiljanleg harka Landspítala

mbl.is/Jim Smart

„Það er óskiljanleg harka í þessu, að ekki sé hægt að hrófla við fyrri ákvörðun í ljósi aðstæðna á vinnumarkaðnum. Þessi ósveigjanleiki er framkvæmdastjórn Landspítala ekki til sóma,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar um þá ákvörðun að segja upp öllu ræstingafólki á Borgarspítalanum og bjóða störfin út á Evrópska efnahagssvæðinu.

Efling-stéttarfélag hefur mótmælt harðlega þeirri ákvörðun Landspítalans í byrjun mánaðarins að segja upp öllum 30 starfsmönnum í ræstingu á Borgarspítalanum í Fossvogi.  Þessi ákvörðun var tilkynnt á fundi með starfsmönnum þar sem jafnframt var tilkynnt að bjóða ætti þessi störf út á Evrópska efnahagssvæðinu.

Sigurður Bessason, formaður Eflingar segir það óskiljanlegt hve stefna Landspítalans er ósveigjanleg, sérstaklega með tilliti til aðstæðna á vinnumarkaðnum. Með þessari ákvörðun sé verið að senda hóp starfsmanna beint á atvinnuleysisskrá. Sigurður segir sjálfgefið að taka málið upp við nýjan heilbrigðisráðherra.

„Af hálfu spítalans kemur fram að þessi ákvörðun hafi verið tekin fyrir ári síðan en það breytir engu um það að það er verið að senda hóp starfsmanna beint á atvinnuleysisskrá. Búið er að funda með yfirmönnum spítalans í tvígang og nú síðast með starfandi forstjóra Landspítala, Birni Zoega, þar sem þess hefur verið krafist að uppsagnirnar yrðu dregnar til baka strax. Þess var krafist að starfsmenn héldu störfum sínum þó svo sjúkrahúsið væri að fara í gegnum erfiðan niðurskurð og njóti þannig jafnræðis á við aðra starfsmenn,“ segir formaður Eflingar.

Hann segir að í starfsmannahópnum séu einstaklingar með langan starfsaldur sem þjónað hafi sjúkrahúsinu á þeim tímum þegar hvað erfiðast var að fá fólk til starfa.

„En nú þegar samdrátturinn hittir okkur fyrir af fullum þunga þá þykir stjórnendum við hæfi að ná hagræðingunni út á þeim sem minnst mega sín,“ segir Sigurður Bessason.

Vefur Eflingar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka