Nú hefur verið ákveðið að bjóða út að nýju verk hjá Vegagerðinni en
útboð hafa legið niðri frá því í haust meðan unnið var að endurgerð
fjárlaga vegna efnahaghrunsins. Um er að ræða verk sem voru á vegáætlun
2008 og hafa því þegar verðið samþykkt af Alþingi í gildandi
samgönguáætlun. Þetta kemur fram á vef Samtaka iðnaðarins.
„Byrjað verður á þeim verkefnum sem voru komin á útboðsstig þegar
fyrirmæli bárust um stöðvun útboða,“ segir Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar.
„Tilmæli eru um að horfa einkum til verkefna á suðvesturhorni landsins
vegna atvinnuástandsins og ekki síst þeirra verka sem eru mannaflsfrek.“
„Verktakar hafa beðið lengi eftir hreyfingu á þessum markaði og biðin hefur verið þeim erfið og löng," segir Árni Jóhannsson forstöðumaður Samtaka iðnaðarins.