Lögreglan á Selfossi stöðvaði í morgun ökumann sem ekki hafði hirt um að skafa rúður. Sá má eiga von á sekt upp á fimm þúsund krónur. Lögreglan á Selfossi segir að sem betur fer sé óalgengt að fólk aki af stað án þess að skafa rúður en það gerist þó of oft.