Hlé hefur nú verið gert á fundi þingsflokks Framsóknarflokksins en hann hefur staðið yfir frá 12:30 Alþingishúsinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins hyggst nú ganga á fund Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur til þess að „ræða málin," að sögn Sivjar Friðleifsdóttur, formanns þingflokks Framsóknarmanna.
Fundurinn hefur verið umtalsvert lengri en í fyrstu var áætlað var og svo virðist sem Framsóknarmenn hafi enn ýmislegt að ræða við væntanlega stjórnarflokka áður en formleg stjórn verður endanlega mynduð. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er stefnt að því að fundur Framsóknarmanna hefjist að nýju kl. 17 í dag.