Uppstokkun í kjölfar kosninga

Vonarstræti 12, þar sem þingmenn VG eru með skrifstofur, verður …
Vonarstræti 12, þar sem þingmenn VG eru með skrifstofur, verður flutt. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Áformum um flutning skrifstofa nokkurra alþingismanna verður væntanlega frestað í ljósi ákvörðunar um Alþingiskosningar 25. apríl næstkomandi og myndunar nýrrar ríkisstjórnar, að sögn Helga Bernódussonar skrifstofustjóra Alþingis.

Ákveðið hefur verið að flytja húsið Vonarstræti 12 til á Alþingisreitnum. Þar voru níu alþingismenn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs með skrifstofur. Á liðnu hausti var því ljóst að þeir alþingismenn sem þar voru færu annað og var ætlunin að rýma húsið í febrúar næstkomandi.  Alþingi hefur leigt efstu hæð Aðalstrætis 6, gömlu Morgunblaðshallarinnar, þar sem Tryggingamiðstöðin var til húsa. Til greina kom að þingmenn úr Vonarstræti 12 flyttu þangað.

Helgi sagði að nú séu fjórir af þingmönnunum úr Vonarstræti 12 komnir í Stjórnarráðið. Stutt er til kosninga og venjulega fylgir uppstokkun á skrifstofum í kjölfar þeirra. Hann taldi því líklegast að alþingismenn héldu núverandi skrifstofum sínum til loka þings.

Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis.
Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. Árni Sæberg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert