Fyrsta verk heilbrigðisráðherrans var að fella niður komugjöld á spítala en þau gefa um sjötíu áttatíu milljónir í ríkiskassann. Ekki liggur fyrir hvar skorið verður niður í staðinn en Ögmundur segir ekki um háar upphæðir að tefla fyrir ríkissjóð en heilbrigðiskerfið velti á annað hundrað milljörðum. Þessar upphæðir geti hinsvegar skipt sköpum fyrir tekjulítið fólk og með komugjöldum hafi verið brotið blað í heilbrigðissögu þjóðarinnar.
Hann ætlar ennfremur að ræða við bæjarstjórann í Hafnarfirði og þá sem tengjast starfsemi Sánkti Jósepsspítala en fyrirhugaðar breytingar eru allar í endurskoðun. Enn kemur til greina að flytja hluta heilbrigðisþjónustunnar til sveitarfélaga sem það kjósa. Ögmundur segir að allt sé nú til skoðunar og endurmats en ekki sé hægt að alhæfa um þær breytingar sem fyrirrennari hans í embætti hafi kynnt á síðustu vikum. Þar hafi líka verið að finna góðar breytingar sem fullkomin sátt hafi verið um. Allt verði þetta skoðað á næstu dögum og vikum.