Norski fjármálaráðherrann, Kristin Halvorsen, segist taka vel í viðræður við íslensk stjórnvöld um gjaldeyrissamstarf ríkjanna ef eftir því verður leitað. Halvorsen er væntanleg til Íslands síðar í vikunni en Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur lýst því yfir að honum hugnist slíkt samstarf. Þetta kemur fram í frétt Reuters.
Halvorsen mun ræða efnahagsástandið á Íslandi við Steingrím er hún kemur til Íslands.
Norska dagblaðið Klassekampen birti viðtal við Steingrím J. síðastliðinn föstudag undir fyrirsögninni: „Hugnast norska krónan“.
Steingrímur segir í viðtalinu að hann hafi óskað eftir viðræðum við norska fjármálaráðherrann, Kristinu Halvorsen, um útvíkkun á gjaldeyrissamstarfi þjóðanna. Henni sé boðið hingað til lands til að vera viðstödd 10 ára afmæli Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs dagana 6. og 7. febrúar nk. Norska krónan gæti verið valkostur við evruna.