Nýskráningar bíla í janúar voru 235 sem er 88,8% fækkun frá janúar í fyrra, að sögn Hagstofunnar. Síðastliðna 12 mánuði, til loka janúar, voru nýskráningar bíla 10.454 en það er 55,3% fækkun frá fyrra tólf mánaða tímabili.
Samtals komu 32 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll í janúar borið saman við 52 þúsund farþega í janúar 2008. Þetta er 38% samdráttur.