Sr. Bolli Pétur Bollason valinn í Laufásprestakalli

Laufáskirkja
Laufáskirkja Sigurður Ægisson

 Valnefnd í Laufásprestakalli, Þingeyjarprófastsdæmi, ákvað á fundi sínum í gær að leggja til að sr. Bolli Pétur Bollason verði skipaður sóknarprestur í Laufásprestakalli. Sex umsækjendur voru um embættið.
 
Embættið veitist frá 1. mars næstkomandi. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Þingeyjarprófastsdæmis.
 
Bolli Pétur Bollason lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 2000. Hann var vígður prestur til Seljaprestakalls 2002 og hefur þjónað þar síðan.

Faðir Bolla Péturs, sr. Bolli Þórir Gústavsson vígslubiskup, var skipaður sóknarprestur í Laufási árið 1966, þar sem hann gegndi embætti uns hann varð vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal árið 1991.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert