Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, segir í bréfi til utanríkismálanefndar norska Stórþingsins, að norska ríkisstjórnin fylgist grannt með þróun mála á Íslandi og umræðum um hugsanlega aðildarumsókn Íslendinga að Evrópusambandinu.
„Ef Ísland ákveður að sækja um aðild að ESB mun ríkisstjórnin láta meta hugsanlegar afleiðingar þess fyrir Noreg, með áherslu á þær spurningar sem þarf að fá svör við. Stofnanir Stórþingsins munu fá upplýsingar um niðurstöðurnar með viðeigandi hætti," segir Støre.
Fulltrúar Hægri flokksins í utanríkismálanefndinni óskaði eftir því, að utanríkisráðuneytið legði með hraði mat á það hvaða afleiðingar aðildarumsókn Íslands hefði á norska hagsmuni. Er bréf Støres svar við því.