Gistinætur á hótelum í desember jukust um 10% frá desember 2007 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi eða um 32% og á höfuðborgarsvæðinu um 13% miðað við desember 2007.
Á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum var fjöldi gistinátta svipaður og í desember 2007 en á Norðurlandi fækkaði gistinóttum í desember um 25% miðað við desember 2007.
Gistinóttum á hótelum fyrir árið 2008 fjölgaði um rúm 2% milli ára. Fjölgun gistinátta varð á Suðurlandi um 13% og á Austurlandi um 7% milli ára. Á öðrum landsvæðum eru gistinætur svipaðar eða hafa dregist örlítið saman á milli ára.
Gistinóttum Íslendinga árið 2008 fækkar um rúm 2% frá árinu 2007 á meðan gistinóttum útlendingar fjölgar um tæp 4% á milli ára.