Sjúkrahúsið á Akureyri sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu í dag:
„Vegna umfjöllunar undanfarnar vikur um þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri, m.a. um þjónustu geðdeildar sjúkrahússins, vilja framkvæmdastjórn og stjórnendur í lækningum og hjúkrun á geðdeild sjúkrahússins koma eftirfarandi á framfæri.
Á undanförnum árum hefur orðið að hagræða í rekstri Sjúkrahússins á Akureyri (FSA). Við árlegum sparnaðarkröfum hefur verið brugðist á þann hátt að almennt hefur ýtrasta sparnaðar verið gætt, svo sem í innkaupum og yfirvinna minnkuð. Einnig hafa ýmsar deildir verið sameinaðar í sparnaðarskyni. Handlækninga-, bæklunar-, háls-, nef- og eyrna- og augndeild voru, svo dæmi sé tekið, allar sameinaðar árið 2004 og árið 2008 var kvennadeild sameinuð þessum einingum. Þá var dagdeildar- og göngudeildarstarfsemi lyflækninga flutt í nýja dag- og göngudeild lyflækninga á árinu 2007. Ýmsar þessar ráðstafana hafa verið umdeildar en augljóst er að þær hafa skilað talsverðri hagræðingu með lítilli röskun á þjónustu við sjúklinga.
Nú hefur m.a. verið ákveðið að hagræða í starfsemi geðdeildar. Geðdeildin hefur undanfarin ár skipst í þrjár starfseiningar; bráðalegudeild á jarðhæð aðalbyggingar sjúkrahússins frá 1986 með 10 sólarhringsrýmum og um 250 innlögnum á ári, dagdeild að Skólastíg 7 frá 1996 þar sem 30 til 40 sjúklingar á ári hafa fengið sérhæfða meðferð og endurhæfingu og göngudeild í aðalbyggingu sjúkrahússins frá 2001 þar sem um 700 einstaklingar hafa fengið greiningu og meðferð árlega. Sérfræðingar deildarinnar sinna einnig sjúklingum á bráðamóttöku og öðrum deildum sjúkrahússins. Legudeild og göngudeild hafa samnýtt starfsfólk og húsnæði á þriðju hæð aðalbyggingar.
Vegna fjárhagsstöðu FSA sem m.a. er tilkomin vegna endurskoðaðra fjárlaga sem samþykkt voru í ljósi aðstæðna hér á landi, s.l. desember, þarf að útfæra sparnaðarleiðir upp á 250 – 300 milljónir króna. Einn þáttur í þeim aðgerðum var ákvörðun um að loka dagdeild geðdeildar og opna síðar á árinu nýja dag- og göngudeild geðdeildar í því húsnæði sem hjúkrunardeildin Sel var í áður. Það húsnæði býður upp á mun meiri möguleika á þróun dagdeildarþjónustu en húsnæðið að Skólastíg 7. Húsnæðið að Skólastíg 7 verður selt og andvirði þess notað til að laga húsnæði Sels að nýrri starfsemi. Stjórnendum lækninga og hjúkrunar á geðdeildinni var ljóst að ekki yrði hægt að undanskilja geðdeildina sparnaðarkröfum, þótt sterkar líkur væru á að eftirspurn eftir þjónustu deildarinnar myndi aukast á næstu misserum vegna vaxandi atvinnuleysis, því féllust þeir á að vinna með framkvæmdastjórninni að útfærslu á þessum sparnaðar- og hagræðingaraðgerðum. Aðrar sparnaðarleiðir voru taldar mundu skerða bráðaþjónustu deildarinnar, sem bar að verja.
Lækkun á rekstrarkostnaði geðdeildar er fyrst og fremst fólginn í fækkun stöðugilda og samnýtingu starfsmanna. Með þessum aðgerðum er áætlað að rekstrarkostnaður lækki um 6-7 milljónir króna árið 2009 og 17-18 milljónir króna árið 2010. Þeim sjúklingum sem fengið höfðu vilyrði um vist á dagdeildinni í febrúar 2009 var beint aftur til tilvísandi lækna, sem ber að veita þeim úrlausn á vanda sínum í bið eftir meðferðarúrræði á nýrri deild.
Hinn 12. janúar s.l. skipaði framkvæmdastjórn sjúkrahússins vinnuhóp um stofnun nýrrar dag- og göngudeildar geðdeildar í húsnæði Sels. Í hópnum eru: Staðgengill framkvæmdastjóra lækninga, forstöðulæknir geðdeildar, yfirlæknir göngudeildar geðdeildar, hjúkrunardeildarstjóri geðdeildar og iðjuþjálfi. Verkefni vinnuhópsins er að gera tillögur umfyrirkomulag þjónustu og skipuleggja nýja dag- og göngudeild í húsnæði Sels. Einnig mun hópurinn gera tillögur um nauðsynlegar breytingar á húsnæðinu. Vinnuhópurinn hefur þegar tekið til starfa og á að skila tillögum sínum til framkvæmdastjórnar FSA fyrir 1. mars n.k. Starfsemi nýrrar dag- og göngudeildar geðdeildar hefst í húsnæði Sels 1. október n.k. Yfirlæknir deildarinnar verður Árni Jóhannesson yfirlæknir núverandi göngudeildar geðdeildar FSA. Gert er ráð fyrir að hefðbundin göngudeildarstarfsemi, greiningar- og meðferðarviðtöl, geti þá hafist af fullum krafti með sama sniði og nú er. Vinnuhópurinn starfar nú að skipulagningu á fyrirkomulagi dagþjónustunnar. Einhugur er um að hún verði byggð á gagnreyndum aðferðum og árangursmælingum. Stefnt er að því að fjölbreytt hópmeðferð verði helsta meðferðarformið í dagþjónustunni. Vonir standa til að hægt verði að hefja þennan þátt starfseminnar samtímis, en ljóst er að meðferðarstarfið þarf góðan tíma til aðlögunar og þróunar. Rekstur dag- og göngudeildar mun gera kleift að nýta starfskrafta á annan hátt en áður og lækka m.a. stjórnunarkostnað. Þannig verður unnt að draga úr þeirri skerðingu á þjónustu sem fækkun stöðugilda veldur.
Það er von okkar að þessar ráðstafanir ásamt fjölmörgum öðrum verði til þess að hægt verði að reka áfram góða heilbrigðisþjónustu á FSA.“