Viðskiptaráðuneytið segir, að dagleg starfsemi Fjármálaeftirlitsins hafi ekki fyrir skaða vegna starfsloka fyrrverandi forstjóra þess og afsagnar stjórnar stofnunarinnar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ráðuneytinu vegna ummæla Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands, um stjórn Fjármálaeftirlitsins, í bréfi til forsætisráðherra í gær. Þar sagði Davíð að fyrir fáeinum vikum hefði mönnum orðið á stjórnsýsluleg afglöp, þegar brotthlaupinn ráðherra skildi Fjármálaeftirlitið eftir stjórnlaust, bæði hvað framkvæmdastjórn og yfirstjórn varðaði, á viðkvæmasta tíma í íslenskri fjármálasögu. Af því hafi hlotist verulegur skaði.
Í yfirlýsingu viðskiptaráðuneytisins segir, að staðgengill forstjóra Fjármálaeftirlitsins hafi tekið við daglegri stjórn eftirlitsins eftir að gengið hafði verið frá starfslokum við fyrrverandi forstjóra þess. Því hafi dagleg starfsemi eftirlitsins ekki orðið fyrir skaða vegna starfslokanna.
Þá sé rétt að taka fram að viðskiptaráðherra hafi skipað nýja stjórn Fjármálaeftirlitsins þann 5. febrúar sl. Samkvæmt upplýsingum frá eftirlitinu hafi ekki orðið tafir á afgreiðslu mála vegna þessa.