Dalai Lama, Tenzin Gyatso, handhafi Friðarverðlauna Nóbels og andlegur og veraldlegur leiðtogi Tíbeta, er væntanlegur til landsins og mun dvelja á Íslandi dagana 1.-3. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu Dalai Lama á Íslandi, sem stendur fyrir komu hans til landsins.
Þetta verður fyrsta heimsókn Dalai Lama, eða hans heilagleika eins og fylgismenn hans kalla hann, til Íslands. Hann hefur heimsótt fjölda landa undanfarin 50 ár, ýmist sem gestur trúfélaga, ríkisstjórna eða í boði einkaaðila.
Meðan á dvöl hans stendur mun Dalai Lama halda fyrirlestur þar sem hann fjallar um lífsgildi, viðhorf og leiðir til lífshamingju ásamt því að svara fyrirspurnum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Laugardalshöll þann 2. júní kl. 15:00. Miðasala er hafin á www.midi.is.
„Dalai Lama er þekktur um allan heim fyrir að hafa aldrei kvikað frá þeirri stefnu að leita friðsamlegra lausna í málefnum Tíbets. Hann hefur verið óþreytandi baráttumaður og málsvari þjóðar sinnar frá því að hann flúði landið sitt árið 1959. Upp frá því hefur hann haft aðsetur í Indlandi og stýrt þaðan ríkisstjórn sinni í útlegð. Þessi merki friðarleiðtogi er nú 73 ára gamall og gefst því landsmönnum einstakt tækifæri til að hlíða á þennan merka mann sem vakið hefur athygli og aðdáun um heim allan, á meðan hann er enn við góða heilsu,“ segir í tilkynningu frá félaginu Dalai Lama á Íslandi.