Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fækkaði um rúmlega 28% í janúar miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 117 þúsund farþegum árið 2008 í rúmlega 84 þúsund farþega nú.
Fram kemur á vef Keflavíkurflugvallar að farþegum til og frá Íslandi fækkaði um tæplega 32% milli ára, en farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um rúm 6%.