Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði fyrr í kvöld ökumann vegna gruns um akstur undir áhrifum lyfja í Reykjanesbæ. Var um hefðbundið eftirlit að ræða. Fyrr um kvöldið var unglingur fluttur á heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að hann missti meðvitund í leik með jafnöldrum sínum.