Vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á dísillolíu síðustu daga hafa Bensínorkan, Skeljungur og Atlantsolía ákveðið að lækka verð á um 5 krónur. Almennt verð á dísil verður eftir breytingu 159,10 krónur lítrinn hjá Orkunni. 162,80 krónur hjá Skeljungi og 159,20 krónur hjá Atlantsolíu.