21 tekinn fyrir ölvunarakstur

Lögreglan.
Lögreglan.

Tuttugu og einn ökumaður var tekinn fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír voru stöðvaðir á föstudagskvöld, ellefu á laugardag, sex á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags.

Fimmtán voru teknir í Reykjavík, þrír í Kópavogi, tveir í Hafnarfirði og einn í Mosfellsbæ. Þetta voru fimmtán karlar á aldrinum 17-60 ára og sex konur, 17-48 ára. Langflestir karlanna, eða ellefu, eru á þrítugsaldri, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert