Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum kl. 16 í dag. Eyrarrósin er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands hafa sett á stofn.
Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú og mun hún afhenda viðurkenninguna og verðlaunagripinn.
Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2009: Eyrbyggja, sögumiðstöð í Grundarfirði; Landsnámssetur Íslands í Borgarnesi og Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi. Eitt þessara verkefna hlýtur verðlaunafé að upphæð 1,5 miljónir króna og verðlaunagrip sem Steinunn Þórarinsdóttir myndlistarkona hefur gert.