Þjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er framúrskarandi að mati alþjóðasamtaka flugvallarekenda, Airports Council International.
Í gæðakönnun samtakanna sem gerð er meðal flugfarþega á helstu flugvöllum var flugstöðin valin í fyrsta sæti evrópskra flugstöðva á fjórða ársfjórðungi síðasta árs fyrir kurteisi og hjálpfýsi starfsfólks, þægindi við að skipta um flug, aðgengi að verslunum og bankaþjónustu, hreinleika, kjarakaup í verslunum (value for money) og biðtíma eftir farangri.
Stöðin hlaut annað sæti fyrir notalegt andrúmsloft og þriðja sæti fyrir öryggistilfinningu farþega. Jafnframt var Flugstöð Leifs Eiríkssonar valin þriðja besta flugstöð í Evrópu í heildaránægju farþega og áttunda besta flugstöð í heimi í flokki flugstöðva með færri en 5 milljónir farþega.
Könnun ACI nær til 127 flugvalla um allan heim. Farþegar eru fengnir til að svara spurningum um tiltekna þjónustuþætti og birtast niðurstöður ársfjórðungslega.