Horfur á vinnumarkaði eru dökkar og útlit fyrir að atvinnuleysi verði á bilinu 8-9% næstu þrjú árin. Ólíklegt er að draga fari úr atvinnuleysi fyrr en á síðari hluta ársins 2011. Verðbólga gengur hratt niður á næstu mánuðum og verður komin undir 3% í lok þessa árs. Samhliða lækkandi verðbólgu má búast við að Seðlabankinn lækki stýrivexti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri hagspá hagdeildar ASÍ sem kynnt var í dag. Nær spáin til loka 2011.
Framundan er mesta samdráttarskeið sem íslenskt efnahaglíf hefur gengið í gegnum á síðari árum. Fyrir höndum eru tvö erfið ár en það tekur að rofa til að nýju á árinu 2011.Útlit er fyrir að niðursveiflan verið bæði dýpri og lengri en fyrstu spár í haust gerðu ráð fyrir.
Erfitt hefur reynst að koma starfsemi bankakerfisins aftur í viðunandi horf eftir bankahrunið og skapa tiltrú á íslenskt efnahagslíf auk þess sem horfur í erlendis fara versnandi. Næstu tvö árin dregur mjög úr umsvifum í hagkerfinu og samdráttur í landsframleiðslu verður verulegur. Umskipti verða á árinu 2011 þegar landsframleiðslan tekur að aukast að nýju. Þessi sýn byggir á þeirri forsendur að það takist að skapa traust á íslensku efnahagslífi á ný og blása lífi í íslensku krónuna. Ef það tekst ekki, er hætta á að hagkerfið festist í fjötrum, að því er segir í hagspá ASÍ.
Útlit er fyrir að atvinnuleysi nái hámarki á öðrum ársfjórðungi þessa árs, en þá gætu um 18 þúsund manns verið að fullu án vinnu sem svarar til um 10% atvinnuleysis. Ef gert er ráð fyrir að um 10% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá verði á hlutabótum á móti hlutastarfi má ætla að yfir 20 þúsund manns verði á atvinnuleysisskrá, að því er segir í spá hagdeildar ASÍ.
Ástandið mun batna yfir sumarmánuðina þegar fullur kraftur verður settur í
ýmiss konar framkvæmdir og viðhaldsverkefni sem á annað borð eru á dagskrá. Með vetrinum fer atvinnulausum aftur að fjölga hratt og gætu jafnvel orðið enn fleiri á fyrri hluta næsta árs en í ár.
Samkvæmt spánni nær verðbólga hámarki á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en gengur eftir það hratt niður og verður komin niður undir 3% í árslok. Samhliða því mun Seðlabankinn hefja lækkun stýrivaxta á öðrum ársfjórðungi þessa árs.