Fjöldi atvinnulausra nálgast 15 þúsund

mbl.is/Steinunn

Hlutfallslegt atvinnuleysi telst nú mest í hópi 20-24 ára, yfir 11% og þar hefur atvinnulausum fjölgað nær fimmfalt frá því í september. Í aldurshópum þeirra sem eru eldri en 25 ára og allt að sextugu hefur orðið fjórföldun á sama tímabili.

Í vefriti fjármálaráðuneytisins er fjallað um aukningu atvinnuleysis. Það hefur aukist mjög mikið á undanförnum mánuðum og segir í vefritinu að ekki séu miklar líkur til þess að það gangi til baka á næstu misserum.

Samkvæmt vef Vinnumálastofnunar eru nú 14.755 skráðir atvinnulausir, 9.354 karlar og 5.401 kona.

Í vefriti fjármálaráðuneytisins segir að talning atvinnulausra sé ekki einfalt mál. Nýjar reglur um bótarétt hafi orðið til þess að tæplega fimmtungur þeirra sem rétt eigi á bótum sé ekki atvinnulaus heldur búi við skert starfshlutfall. Það var áður óþekkt nema í fiskvinnslu þegar skortur var á hráefni.

Atvinnuleysishlutfall er mæling á raunverulega tapaðri vinnu sem hlutfall af því mögulega vinnumagni sem boðið er fram. Þá stærð er hins vegar alls ekki einfalt að meta og hún er ekki mæld heldur er byggt á áætlun sem ekki er endurskoðuð eftir að Vinnumálastofnun hefur gefið út skýrslu um atvinnuástand fyrir hvern mánuð.

Hinn öri vöxtur atvinnuleysis hefur vakið mikla eftirtekt og er án fordæma bæði hvað varðar fjölgun þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá og hlutfall atvinnulausra. Nú reikna allir með því að atvinnuleysi muni halda áfram að aukast. Það er hins vegar ekki án fordæma að það vaxi jafn hratt og það hefur gert hingað til í þessari niðursveiflu.

Á meðfylgjandi mynd er gerð tilraun til þess að meta hlutfallslegt atvinnuleysi eftir aldursflokkum og hvað það hefur aukist mikið að undanförnu. Byggt er á upplýsingum Hagstofu um mannfjölda eftir aldri 1. desember síðastliðinn og atvinnuþátttöku eftir aldri úr vinnumarkaðskönnunum. Þær tölur eru síðan notaðar til að skipta vinnuaflsframboði eftir aldri.

Á það hefur verið bent að atvinnuleysi hefur aukist mest hjá yngstu aldursflokkunum. Það hefur til að mynda meira en sexfaldast frá því í september hjá þeim sem eru innan við tvítugt en telst þó vera innan við 4% af framboði. Það stafar af því að atvinnuþátttaka þeirra sem yngri eru en 25 ára telst næstum því jafn mikil og hjá þeim sem eldri eru. Sú þátttaka er væntanlega annars vegar sumarvinna og hins vegar hlutastörf með námi enda eru yfir 80% 15-19 ára í skólum og um helmingur 20-24 ára. Aukavinna nemenda hefur væntanlega dregist mjög saman.

Hlutfallslegt atvinnuleysi telst nú mest í hópi 20-24 ára, yfir 11% og þar hefur atvinnulausum fjölgað nær fimmfalt frá því í september. Í aldurshópum þeirra sem eru eldri en 25 ára og allt að sextugu hefur orðið fjórföldun.

Minnst hefur aukningin orðið hjá þeim þátttakendum á vinnumarkaði sem eldri eru en sextugir. Miðað við þessa útreikninga er atvinnuleysi í janúar lægra en meðaltalið hjá öllum aldursflokkum eldri en 35 ára og lægst hjá þeim sem eru að nálgast sjötugt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert