Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd Alþingis gagnrýna það að fulltrúar VG, Samfylkingar og Framsóknarflokksins hafi afþakkað boð Evrópska seðlabankans, sem bauðst til að veita umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands.
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni töldu sjálfsagt og eðlilegt að leita eftir þessari umsögn, enda er mikilvægt að við afgreiðslu málsins í nefndinni komi fram álit sérfróðra aðila, innlendra sem erlendra, á efnisatriðum frumvarpsins.
Meirihluti nefndarmanna, fulltrúar VG, Samfylkingar og Framsóknarflokksins höfnuðu hins vegar tillögu sjálfstæðismanna um þetta og báru því einkum við að ætlunin væri að vinna málið hratt og því gæfist ekki tími til að bíða eftir þessari umsögn. Sjálfstæðismenn óskuðu þá eftir því að eftir því yrði leitað að ECB [Evrópska seðlabankans skilaði umsögn innan fárra daga, enda væri hvort sem er ljóst að talsverð vinna væri eftir við þetta mál innan nefndarinnar. Ekki var heldur á það fallist af hálfu meirihluta nefndarinnar.
Þessi sérkennilega afgreiðsla meirihluta viðskiptanefndar veldur vonbrigðum, enda er ljóst að innan ECB er að finna verulega sérþekkingu á löggjöf um seðlabanka, sem eðlilegt hefði verið að nýta við meðferð þessa frumvarps,“ segir í tilkynningu frá Birgi Ármannssyni, sem á sæti í viðskiptanefnd fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.