Sá sem vann sextán milljónir króna í lottóinu laugardagskvöldið 31. janúar hefur ekki enn gefið sig fram þrátt fyrir að lýst hafi verið eftir honum. Miðinn var keyptur í Fjarðarkaupum föstudaginn 30. janúar á tímabilinu 18:00 til 19:00. Hvetja starfsmenn Íslenskrar getspár alla þá sem keyptu lottómiða í Fjarðarkaupum á þeim tíma til þess að skoða miða sína. Lukkutölurnar voru: 9, 14, 19, 30 og 31.